Aikido er japönsk bardagaíþrótt sem þróuð var snemma á 20. öldinni og hefur þá sérstöðu að það er ekki keppt í íþróttinni. Allir æfa saman óháð stærð, styrk, kyni og aldri. Aikido eykur styrk, þol og liðleika og bætir líkamsvitund auk þess að vera frábær félagskapur.

Samkomutakmarkanir eru ekki lengur í gildi vegna COVID-19 faraldursins. Æfingar fara fram í æfingasal þar sem snertingar milli iðkenda eru valfrjálsar en ekki bannaðar. Þrifið er eftir hverja æfingu og sótthreinsað reglulega.

Vetraráætlun hefst 26. ágúst með krakkaæfingar á mánudögum og miðvikudögum kl. 17:00 og æfingar fullorðinna á mánudögum og miðvikudögum kl. 18:00, föstudögum kl. 17:00 og laugardögum kl. 9:30. Nánari upplýsingar eru hér um verð og æfingatíma.

Komdu við á síðunum okkar á samfélagsmiðlum til að sjá hvað er í gangi. Tengla þangað má finna hér efst á öllum síðum.

Sérstaklega mælum við með myndböndunum á facebook síðunni okkar.

Translate