Í barna aikido blöndum við saman leikjum, færniæfingum og aikido æfingum sem henta krökkum. Kobayashi dojo var leiðandi í að byrja að kenna börnum aikido og er barnastarf í flestum klúbbum sem starfa innan þess félagsskapar. Í hverjum tíma eru a.m.k. 2 kennarar sem hafa áralanga reynslu af aikido.
Hér er hægt að skrá börn á æfingar veturinn 2023 – 2024.
Æfingarnar eru settar upp sem hér segir:
- Upphitun og teygjur/liðleikaæfingar
- Gólfrúllur og skref
- Liða- og samvinnuæfingar
- Aikido tækni (2-3 í hverjum tíma)
- Leikir (5 mínútur í lok tímans)
Hverri önn lýkur svo með prófi.
Allur krakkahópurinn æfir saman á mánudögum og miðvikudögum kl. 17:00.
Verið velkomin í prufutíma.
Sjá æfingatímana fyrir yfirlit.