Aikikai Reykjavík hefur það hlutverk að standa fyrir æfingum í aikido og breiða út þekkingu á aikido á Íslandi með reglulegum æfingum. Félagið fær reglulega heimsóknir frá erlendum kennurum sem bæði færa félaginu nýjan fróðleik sem og sjá um svartbeltapróf.
Félagið flutti 1. apríl 2012 í nýtt dojo í Ármúla 19 (bak við verslunina Glóey).
Aikikai Reykjavík í núverandi mynd var endurvakið á gömlum grunni 9. september 1999.